Extended Books Library

Hungurleikarnir Icelandic Edition

Hungurleikarnir Icelandic Edition

Á rústum staðar sem eitt sinn hét Norður-Ameríka er ríkið Panem; höfuðborgin Kapítól umkringd tólf umdæmum sem hvert hefur sín sérkenni. Á hverju ári skipa yfirvöld í Kapítól umdæmunum að senda einn strák og eina stelpu að keppa á Hungurleikunum. Keppnin er sýnd í beinni útsendingu um allt land og reglurnar eru einfaldar – sá sigrar sem heldur lífi. Katniss Everdeen er sextán ára og vekur athygli um allt Panem þegar hún býðst til að taka þátt í Hungurleikunum í stað systur sinnar. Með henni úr Tólfta umdæmi fer bakarasonurinn Peeta. Sjálf á Katniss ekki von á öðru en að hún gangi í opinn dauðann, en sjálfsbjargarviðleitni hennar er meiri en flestra annarra og Peeta leikur leikinn á alveg nýjan máta. Hungurleikarnir er fyrsta bók í þríleik eftir Suzanne Collins. Bækurnar hafa notið gríðarlegra vinsælda undangengin ár, vermt efstu sæti metsölulista og hlotið bestu meðmæli ritdómara. Kvikmynd gerð eftir fyrstu sögunni verður frumsýnd vorið 2012.

ASIN ‏ : ‎ B01ENNAQ8U
Publisher ‏ : ‎ Forlagið (April 20, 2016)
Publication date ‏ : ‎ April 20, 2016
Language ‏ : ‎ Icelandic
File size ‏ : ‎ 1483 KB
Text-to-Speech ‏ : ‎ Not enabled
Enhanced typesetting ‏ : ‎ Enabled
Word Wise ‏ : ‎ Not Enabled
Sticky notes ‏ : ‎ On Kindle Scribe
Print length ‏ : ‎ 276 pages

View on Amazon